Lokað fyrir skráningar
Á námskeiðinu göngum við saman, skref fyrir skref, í gegnum frumskóg styrkumsóknaskrifa undir leiðsögn sérfræðinga hjá Poppins & Partners. Markmiðið er að í lok námskeiðs hafir þú öðlast sjálfstraust í umsóknaskrifum og lært að skrifa styrkumsóknir eins og fagmanneskja, en hvoru tveggja mun auka líkur þínar á að ná inn 10-70 milljón króna styrk frá Tækniþróunarsjóði.
Skráðu þig á biðlista til að fá tölvupóst þegar við opnum fyrir skráningar aftur!
Á námskeiðinu verður þessum og fleiri spurningum svarað:
- Hvers konar verkefni eru vænleg til árangurs?
- Hvers konar hugarfar skilar árangri við skrifin?
- Hver eru algengustu mistökin sem umsækjendur gera?
- Hverjar eru grunnreglur styrkumsóknaskrifa?
- Hvernig er best að forgangsraða köflum TÞS umsóknarinnar?
- Hvernig greinum við stöðu þekkingar, stöðu markaðar, markhópa og samkeppni?
- Hvernig er best að vinna sig í gegnum Excel skjalið alræmda?
- Hvernig setjum við upp forsendur veltu, líftímakúrfu og viðskiptamódel?
- Hvað eru innlend verðmæti og hvernig eru þau reiknuð út?
- Hvernig er hægt að setja upp 10 ára rekstraráætlun?
- Hvernig eru verkþættir brotnir niður í undirverkþætti, vörður og niðurstöður og hvaða verkþættir eru leyfðir?
- Hvernig er hlutfall kostnaðar hvers verkþáttar af heildarkostnaði reiknað út?
- Hvernig nýtast myndir og myndrænt efni til að styrkja umsóknina?
- Hvernig á að setja upp heimildaskrá?
Innifalið:
- Aðgangur að námskeiði og grunnnámsefni (glærur og fyrirlestrar).
- Umsóknareyðublöð (verkefnislýsing og excel skjal) með leiðbeiningum.
- Vinnuskjöl fyrir rafræna umsókn, verk- og kostnaðaráætlun með leiðbeiningum.
- Öráætlun P&P.
- Orðabók styrkumsóknaskrifarans.
- Tékklisti fyrir skrifin.
- Tékklisti fyrir lokafrágang.
- Tékklisti fyrir skilin.
- Gryfjur og góð ráð við styrkumsóknaskrif.
- Styrkjadagatal P&P 2020.
KAUPAUKI:
- Frír aðgangur að Facebook hópi um TÞS styrkumsóknaskrif þar sem sérfræðingar P&P munu svara spurningum og deila góðu ráðum og hvatningu fram að skilum. Virði: 5.990 kr.
Yfirlit námskeiðs
Hæ! Við erum Þórunn og Hanna Kristín.
Við erum stofnendur Poppins & Partners og höfum aðstoðað tugi frumkvöðla og fyrirtækja við að ná inn styrkjum fyrir verkefnin sín.
Samtals höfum við náð í styrki fyrir um 900 milljónir króna fyrir frumkvöðla, sprota og starfandi fyrirtæki á Íslandi, þar af 36 styrki frá Tækniþróunarsjóði, og erum með 35% meðalárangurshlutfall í umsóknum í TÞS.
Við höfum leiðbeint og mentorað í íslensku frumkvöðlasamfélagi og skólakerfi í fjölda ára og viljum miðla af samanlagðri 2ja áratuga reynslu okkar á þessu sviði.
Algengar spurningar
Hversu lengi hef ég aðgang að námskeiðinu?
Þú getur tekið námskeiðið á þínum hraða og hefur aðgang að því að eilífu.
Get ég fengið styrk frá stéttarfélaginu mínu fyrir námskeiðsgjaldinu?
Flest stéttarfélögin veita fræðslustyrki, en mismunandi er hversu há upphæð er veitt á ári. Sem dæmi veitir VR styrk fyrir allt að 90% af gjaldi fyrir starfstengt námskeið. Hafðu samband við þitt stéttarfélag til að fá upplýsingar um möguleika á endurgreiðslu.
Hvað gerist ef ég er óánægð/ur með námskeiðið?
Ef þér þykir námskeiðið ekki uppfylla það sem lofað er í lýsingu og námskrá þá skaltu láta okkur vita innan 7 daga og við endurgreiðum þér námskeiðsgjaldið að fullu.