Á styrkumsóknanámskeiðum P&P munum við ganga saman, skref fyrir skref, í gegnum frumskóg styrkumsóknaskrifa undir leiðsögn sérfræðinga. Markmiðið er að í lok námskeiðanna hafir þú öðlast sjálfstraust í umsóknaskrifum og lært að skrifa styrkumsóknir eins og fagmanneskja og auka líkur þínar á að ná inn styrknum sem þú hefur augastað á.
Rafrænt námskeið í TÞS umsóknarskrifum fer í loftið þann 15. maí 2020.
Opið fyrir skráningar til 20. maí 2020.
Væntanlegt!
Námskeið í styrkumsóknaskrifum fyrir verkefni í menningu og listum.
Áætlað er að námskeiðið fari í loftið haustið 2020.
Skráið ykkur á lista hér fyrir neðan til að vera fyrst til að fá upplýsingar um námskeiðið þegar það fer í loftið.
Hæ, við erum Þórunn og Hanna.
Við erum stofnendur Poppins & Partners og höfum aðstoðað tugi frumkvöðla og fyrirtækja við að ná inn styrkjum fyrir verkefnin sín.
Samtals höfum við náð í styrki fyrir um 900 milljónir króna fyrir frumkvöðla, sprota og starfandi fyrirtæki á Íslandi, þar af 36 styrki frá Tækniþróunarsjóði, og erum með 35% meðalárangurshlutfall í umsóknum í TÞS.
Við höfum leiðbeint og mentorað í íslensku frumkvöðlasamfélagi og skólakerfi í fjölda ára og viljum miðla af samanlagðri 2ja áratuga reynslu okkar á þessu sviði.